Kare Schickeria Marbleprint borð svart Ø110cm
Skráðu þig inn til að sjá verð
Schickeria hringborðið er glæsilegt og tímalaust borð sem verður fljótt miðpunktur heimilisins. Hringlaga formið skapar notalegt andrúmsloft þar sem fjölskylda og vinir geta komið saman yfir morgunkaffi, kvöldmat eða góðu spjalli í lok dags.
Vörunúmer
87056
Flokkur: Borð
Lýsing
Borðið er með fallegu marmaraútliti sem gefur því fágað og vandað yfirbragð og er jafnframt auðvelt í þrifum. Húðuð borðplatan úr sterkri MDF-plötu er endingargóð og síður viðkvæm fyrir blettum. Fóturinn úr lökkuðu stáli tryggir góðan stöðugleika og gefur borðinu nútímalegt og létt útlit. Schickeria borðið sameinar stíl, notagildi og þægindi í einu fallegu húsgagni.
Frekari upplýsingar
| Stærð vöru | L: 110cm x B: 110cm x H: 74cm |
|---|---|
| Vörumerki | Kare Design |
| Tegund | Borðstofuborð |
| Vörusafn | Borðstofuhúsgögn, KARE – Húsgögn |
Um vörumerkið
Kare Design var stofnað í Þýskalandi árið 1981 og hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Í dag má finna vörur frá Kare í yfir 50 löndum og fjórum heimsálfum.
Stofnendur fyrirtækisins, Jürgen Reiter og Peter Schönhofen, hafa ávallt lagt áherslu á vandaða framleiðslu á viðráðanlegu verði en um leið að hanna vörur sem endurspegla persónuleika þeirra sem búa á heimilinu. Fyrirtækið framleiðir allt frá smávörum á borð við styttur, ljós, spegla og aðra skrautmuni upp í stór húsgögn.
Reiter og Schönhofen segja markmiðið frá upphafi hafa verið að skera sig úr fjöldanum og skapa frumlegar vörur fyrir fagurkera. Má með sanni segja að það hafi tekist því vörurnar frá Kare Design eru svo sannarlega eftirtektarverðar; frumlegar, flottar og vandaðar.
