Moomin krús Mymble

Mymbla, stóra systir Míu litlu er algjör rómantíker sem verður auðveldlega hrifin af sterkum og hetjulegum persónum. Þegar hún var ung bar hún oft ábyrgð á fjölmörgum yngri systkinum sínum, en nú kýs hún frekar að njóta líðandi stundar og ævintýranna sem lífið í Múmíndal hefur upp á að bjóða.

Vörunúmer 5111005297 Flokkur:
Lýsing

Falleg myndskreytingin fangar bæði sjálfstæði hennar, lífsgleði og þá rómantísku hlið sem gerir Mymblu að einni af eftirminnilegustu persónum Múmínheimsins. Á þessum róslitaða Mymblu-bolla er hún klædd í fallegan ballettbúning sem undirstrikar draumkennda og rómantíska persónu hennar. Mymbla er yfirleitt með hárið bundið upp í hnút.

Frekari upplýsingar
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
LiturBleikur
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.