Moomin skál 15cm Love

Love skálin sýnir hlýlega og rómantíska stund þar sem Snorkstelpan og Múmínálfurinn mála blóm saman á vegg. Myndskreytingin byggir á myndasögunni Múmín byggir hús (Moomin Builds a House), þar sem Múmínálfurinn ákveður að byggja sér eigið hús.

Vörunúmer 5111005317 Flokkur:
Lýsing

Í sögunni vinna Snorkstelpan og Múmínálfurinn saman að því að skreyta nýja heimilið og njóta samverunnar. Myndin fangar vel þá ást, vináttu og samheldni sem einkenna samband þeirra og hefur gert Love línuna að einni af vinsælustu Múmínseríunum.

Frekari upplýsingar
Stærð vöruL: 15cm x B: 15cm x H: 5.5cm
Vörumerki
Tegund
Vörulína
Vörusafn
Um vörumerkið
Hinar sívinsælu Múmín vörur eru framleiddar af Arabia, dótturfyrirtæki Iittala. Heimur Múmínálfanna var búinn til af Tove Jansson á árunum 1945 til 1970, en hún sótti innblástur í eigið líf, fjölskyldu og vini. Einhverjir í kringum hana voru fullir af ást og gleði á meðan aðrir voru örlítið fúlir og elskuðu einveru. Allir þó frábærir á sinn hátt! Árlega koma nýjar vörur í takmörkuðu magni sem enginn Múmínaðdáandi má láta framhjá sér fara.