8 vörur fundustRaðað eftir vinsældum

MLILY Lúxus trefjasæng downlike 140×200

Á lager

MLILY Lúxus trefjasængin er hlý og vönduð trefja-dún sæng. Hún er gerð úr 100% Polyester trefjum sem líkjast dún og því einstaklega þykk og góð sæng. Sængin er 1120 gr. Áklæðið utan um sængina er 100% bómullarsatín. Einstaklega mjúkt og þægilegt viðkomu. Sængin er hólfaskipt svo fylling hennar dreifist rétt um alla sængina. Virkilega vönduð sæng sem ber vottunina OEKO-TEX 100 sem er staðall um að engin skaðleg efni voru notuð við framleiðsluna á sænginni.

MLILY Premium trefjasæng 140×200

Á lager

MLILY Premium trefjasæng er millihlý gerð úr 100% Polyester trefjum. Sængin er 1260 gr. og því þykk og góð sæng. Áklæðið utan um sængina er 100% bómull. Sængin er hólfaskipt svo fylling hennar dreifist rétt um alla sængina. Virkilega vönduð sæng sem ber vottunina OEKO-TEX 100 sem er staðall um að engin skaðleg efni voru notuð við framleiðsluna á sænginni.

Dorma Classic sæng 140×200

Á lager

Dorma classic sængin er 1345 gr.gerð úr hollow fiber ( holtrefjum). Sængin er meðalhlý, áklæðið er úr 100% lífrænni bómull og hana má þvo á 60 gráðum og þurrka vel í þurrkara. Sængin er ofnæmisprófuð og Oekotex vottuð. Sæng á frábæru verði sem hentar

MLILY Deluxe dúnsæng 140×200

Ekki til á lager

MLILY Deluxe dúnsængin er millihlý sæng gerð úr gæðadúni og fjöðrum. Sængin er 1680 gr. að þyngd og fylling er 15% andardúnn á móti 85% smá fiðri. Áklæðið utan um sængina er 100% bómull. Sængin er hólfaskipt svo fylling hennar dreifist rétt um alla sængina. Vönduð sæng sem ber vottunina OEKO-TEX 100 sem er staðall um að engin skaðleg efni voru notuð við framleiðsluna á sænginni.

Pure Comfort sæng 140×200 300g

Ekki til á lager

Létt og þægileg fibersæng. Stærð: 140×200 cm. Sængin er 300g (fæst einnig 400g). Má þvo á 60°c en það er hitastig sem rykmaurar þola ekki svo gott er að nota sæng sem þolir þennan þvottahita ef um rykofnæmi er að ræða.

Dorma Premium dúnsæng 140×200

Ekki til á lager

Dorma Premium dúnsængin er 1036 gr. Hlý og góð sæng með 15% dún og 85% smáfiðri. Áklæðið utan um sængina er úr 100% lífrænni bómull og andar einstaklega vel. Sængin er Oekotex vottuð. Sængin fæst í þremur stærðum, 140×200, 140×220 og 200×220.