Broste Copenhagen
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
Broste Nordic Sand diskur Ø20 cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðFallegur diskur úr Nordic sand línunni hjá Broste.
Broste Nordic Sand skál Ø15×8 cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðFalleg skál úr Nordic sand línunni hjá Broste.
Broste Salt espresso krús
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðEinfaldleikinn er allsráðandi hjá Broste í stellinu þeirra Salt. Hvítur litur með fallegum gljáa og handmálaðri svartri rönd á köntunum.
Broste Nordic Sand diskur ferkantaður 12,5×35 cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðFlottur, stór leirdiskur í Nordic sand línunni frá Broste Copenhagen. Hægt er að fá heilt matar- og kaffistell í ýmsum útfærslum í þessari línu.




