Broste Copenhagen
Broste Copenhagen var stofnað árið 1955 í Kaupmannahöfn. Broste er meira en hönnunarfyritæki, það er lífstíll.
Broste sækir innblástur í hönnun sína um allan heim. Mottóið þeirra er að vera partur af lífinu, að skapa lífstíl í kringum okkur. Þar af leiðandi hanna þeir vörur í sérlega miklu úrvali fyrir viðskiptavini sína. Broste Copenhagen er eitt af vinsælustu húsbúnaðarfyrirtækjum í Skandinavíu, fyrirtækið er staðsett í Kaupmannahöfn.
Broste ferðast um allan heim til þess að fá innblástur og að finna réttu efnin í vörurnar en danir eru sérstaklega þekktir fyrir að vera frumkvöðlar á sviði hönnunar. Teymið á bakvið þessa skapandi hönnun er stanslaust að finna meðalveginn í því útliti sem Broste sækist eftir, að halda í skandinavíska stílinn ásamt því að fylgja tískustraumunum.
Broste hannar og framleiðir tvær línur á hverju ári ásamt því að vera með fasta hönnunarlínu í kertum og borðbúnaði sem alltaf er hægt að ganga að.
Broste Limfjord skurðarbretti eik 16,6x28cm
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðFallegt og vandað brauðbretti úr eik sem hentar vel fyrir sneiðingu á brauði, grænmeti, ávöxtum, kjöti og ostum. Það er einnig frábært sem framreiðsluplata fyrir forrétti eða snarl.
Broste Eco teljós S/9 hvít
Á lager
Skráðu þig inn til að sjá verðKlassísk og umhverfisvæn teljós sem skapa hlýja og notalega stemningu. Framleidd úr hreinu steríni sem tryggir hreinan og jafnan bruna.




