Rustic panna á viðarplatta 15×15
Skráðu þig inn til að sjá verð
Falleg og vönduð steypujárnspanna á platta úr acacia viði sem sameinar eldun og glæsilega framreiðslu. Steypujárnið dreifir hitanum vel og heldur honum lengi, þannig að maturinn helst heitur við framreiðslu.
Pannan hentar einstaklega vel fyrir osta, grænmeti, kartöflur, tapas, smárétti og aðra heita rétti. Berið réttinn fram beint í pönnunni á viðarplattanum og fáið notalega veitingastaðastemningu heim að borðinu.
Steypujárn er þekkt fyrir mikla endingu og framúrskarandi hitageymslu. Það hitnar jafnt, þolir háan eldunarhita og hentar sérstaklega vel þegar ná á góðri steikingarskorpu. Þegar pannan hefur hitnað heldur hún hitanum lengi og er því frábær til framreiðslu.
Steypujárnspönnur geta enst árum og jafnvel áratugum með réttri meðhöndlun.
Notkun
Hitið pönnuna rólega upp og forðist mjög snöggar hitabreytingar. Notið viðeigandi hitavörn þegar pannan er færð til, þar sem pannan og handföngin verða mjög heit við notkun.
Acacia viðarplattinn er ætlaður undir pönnuna við framreiðslu. Viðarplattinn skal ekki setja á hellu, grill eða í ofn.
Umhirða
Handþvoið pönnuna og þurrkið hana vandlega strax eftir þvott. Látið hana ekki liggja í bleyti og setjið hana ekki í uppþvottavél. Forðist að kæla mjög heita pönnu skyndilega með köldu vatni.
Acacia viðarplattann skal handþvo eða þurrka af með rökum klút og þurrka strax. Ekki leggja viðinn í bleyti eða setja í uppþvottavél.
| Stærð vöru | L: 15cm x B: 15cm x H: 0cm |
|---|
